Cape Herb & Spice var stofnað árið 1994 í Höfðaborg í Suður-Afríku. Það er í dag hluti af einu stærsta matvælafyrirtæki Suður-Afríku og er selt út um allan heim.
Á umbúðum þeirra má sjá að þeir leggja mikinn metnað í vörurnar sínar sem eru ekki bara einstaklega fallegar heldur einnig mjög notendavænar. Þeir leggja mikið upp úr gæðum og ferskleika og má þar nefna:
- Vörurnar eru framleiddar fyrir hverja sendingu
- Ekkert MSG
- Engin gervi litar- og bragðefni
- Án erfða- og aukaefna
- Án rotvarnarefna
- 80% af kryddum og jurtum eru keyptar beint af framleiðanda