Skilmálar

Eftirfarandi skilmálar gilda um öll þau viðskipti sem eiga sér stað í gegnum vefsíðuna www.gurmey.is.

Sendingarkostnaður og afhending: 

Pantanir eru sendar með Íslandspósti og eru verð eftir verðskrá Íslandspóst að hverju sinni. Pantanir eru afhentar Íslandspósti næsta virka dag eftir pöntun. Afhendingartími er að jafnaði 1-3 virkir dagar. Afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar gilda um allar pantanir.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur: 

Kaupandi hefur 14 daga til að skila vöru gegn fullri endurgreiðslu. Skilyrði fyrir skilum eru að varan sé ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Sé vara innsigluð skal innsigli hennar vera órofið. Skilafrestur byrjar að líða þegar vara er afhent skráðum viðtakanda. Sé óskað eftir endurgreiðslu skal kvittun fyrir vörukaupum að fylgja með.

Gölluð vara:

Komi upp sú leiðinlega staða að kaupanda berist gölluð vara er honum boðin ný vara í staðin. Sé varan ekki til á lager er hún endurgreidd að fullu eða kaupanda boðin önnu sambærileg vara í staðin.

Verð, skattar og gjöld:

Athugið að öll verð sem gefin eru upp í netversluninni eru með 11% eða 24% virðisaukaskatti, eftir því sem við á. Verð eru gefin upp með fyrirvara um mistök eða prentvillur og áskilur Gurmey.is sér rétt á að hætta við pantanir vegna rangra verðupplýsinga. Athugið að verð geta breyst án fyrirvara.

Greiðslur: 

Greiðslur með kreditkorti fara í gegnum örugga greiðslugátt Borgunar (Borgun.is) sem hafa hlotið PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) öryggisvottun.

Trúnaður:

Gurmey.is heitir fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Helstu upplýsingar:

GÚRMEY ehf

Álfhólsvegur 22a, 200 Kópavogur
Kt. 490321-1600
Vsk. númer: 140506
info@gurmey.is
s. 846 9890